Skilmálar
Vefsvæði Bílvirkinn, www.bilvirkinn.is, er háð eftirfarandi notkunarskilmálum.
Afnot takmarkast af: Efnið á vefnum, hvort sem um er að ræða texta, myndir eða annað
efni, er í eigu Bílvirkinn og verndað af höfundarréttarlögum. Óheimilt er að nota efnið í heild
sinni eða að hluta í atvinnuskyni eða til tekjuöflunar, en þó er heimilt að vísa í efni á vefnum.
Bílvirkinn áskilur sér rétt til að banna tilvísanir sem gerðar eru í atvinnuskyni eða tilvísanir
sem til þess eru fallnar að kasta rýrð á Bílvirkinn eða þau vörumerki sem fyrirtækið hefur umboð
fyrir. Athygli er vakin á því að öll vörumerki á þessum vef eru skráð vörumerki og er algerlega
óheimilt að nota þau, dreifa eða afrita nema með skriflegu leyfi eiganda vörumerkisins.
Efni á vefsvæðinu: Vefsvæði Bílvirkinn inniheldur upplýsingar um þá þjónustu og varahluti
sem fyrirtækið býður til sölu á Íslandi skv. samkomulagi við birgja og framleiðendur hverju sinni.
Ekki er tryggt að vörur á þessum vef séu ávallt til á lager og í einstaka tilfellum er eingöngu
um að ræða að vara sé seld gegn sérpöntun. Bílvirkinn og birgjar fyrirtækisins áskilja sér rétt
til að breyta vöru- og þjónustuframboði án fyrirvara, breyta verði og búnaði án fyrirvara. Upplýsingarnar
á vefsvæðinu eru ekki tæmandi og koma aldrei í stað þeirra upplýsinga sem starfsfólk Bílvirkinn
veitir. Bílvirkinn leggur áherslu á að upplýsingar á vefsvæðinu séu réttar, en afsalar sér ábyrgð
á því ef upplýsingar reynast rangar.
Verð á vöru og þjónustu: Verð á vöru og þjónustu á vefnum er einungis til viðmiðunar.
Upplýsingar um verð og lýsing vöru fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu Bílvirkinn. Slíkar upplýsingar
kunna að vera úreltar og Bílvirkinn beinir því til notanda að sannreyna upplýsingarnar sem fram
koma á vefsvæðinu á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti. Verð getur
breyst án fyrirvara og getur verið háð gengi á hverjum tíma.
Vernd persónuupplýsinga: Bílvirkinn mun ekki undir neinum kringumstæðum selja eða láta
þriðja aðila í té persónuupplýsingar notenda.
Tenging við önnur vefsvæði: Bílvirkinn ber ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum sem unnt er
að tengjast í gegnum vefsvæði Bílvirkinn og eru með öllu ótengdir Bílvirkinn eða þeim birgjum sem
Bílvirkinn er umboðsaðili fyrir. Jafnframt ber Bílvirkinn ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum öðrum sem
veita aðgang að vefsvæði Bílvirkinn.
Takmörkun ábyrgðar: Bílvirkinn tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni
af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu. Bílvirkinn
áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála hvenær sem er.
Lögsaga og dómstólar: Notkunarskilmálarnir eru háðir íslenskum lögum, og íslenskir
dómstólar hafa einir lögsögu í ágreiningsmálum sem varða notkunarskilmálana og vefsvæðið.
