Lokað
8:00 - 17:00
Járnháls 6, 110 Reykjavík
Járnháls 6
Skilmálar

Skilmálar vefsíðu Bílvirkinn

Vefsvæði Bílvirkinn, www.bilvirkinn.is, er háð eftirfarandi notkunarskilmálum.

Afnot takmarkast af: Efnið á vefnum, hvort sem um er að ræða texta, myndir eða annað efni, er í eigu Bílvirkinn og verndað af höfundarréttarlögum. Óheimilt er að nota efnið í heild sinni eða að hluta í atvinnuskyni eða til tekjuöflunar, en þó er heimilt að vísa í efni á vefnum. Bílvirkinn áskilur sér rétt til að banna tilvísanir sem gerðar eru í atvinnuskyni eða tilvísanir sem til þess eru fallnar að kasta rýrð á Bílvirkinn eða þau vörumerki sem fyrirtækið hefur umboð fyrir. Athygli er vakin á því að öll vörumerki á þessum vef eru skráð vörumerki og er algerlega óheimilt að nota þau, dreifa eða afrita nema með skriflegu leyfi eiganda vörumerkisins.

Efni á vefsvæðinu: Vefsvæði Bílvirkinn inniheldur upplýsingar um þá þjónustu og varahluti sem fyrirtækið býður til sölu á Íslandi skv. samkomulagi við birgja og framleiðendur hverju sinni. Ekki er tryggt að vörur á þessum vef séu ávallt til á lager og í einstaka tilfellum er eingöngu um að ræða að vara sé seld gegn sérpöntun. Bílvirkinn og birgjar fyrirtækisins áskilja sér rétt til að breyta vöru- og þjónustuframboði án fyrirvara, breyta verði og búnaði án fyrirvara. Upplýsingarnar á vefsvæðinu eru ekki tæmandi og koma aldrei í stað þeirra upplýsinga sem starfsfólk Bílvirkinn veitir. Bílvirkinn leggur áherslu á að upplýsingar á vefsvæðinu séu réttar, en afsalar sér ábyrgð á því ef upplýsingar reynast rangar.

Verð á vöru og þjónustu: Verð á vöru og þjónustu á vefnum er einungis til viðmiðunar. Upplýsingar um verð og lýsing vöru fela ekki í sér bindandi tilboð af hálfu Bílvirkinn. Slíkar upplýsingar kunna að vera úreltar og Bílvirkinn beinir því til notanda að sannreyna upplýsingarnar sem fram koma á vefsvæðinu á hverjum tíma hafi hann í hyggju að nýta þær með einhverjum hætti. Verð er ávallt með virðisaukaskatti og getur breyst án fyrirvara og getur verið háð gengi á hverjum tíma.

Vernd persónuupplýsinga: Bílvirkinn mun ekki undir neinum kringumstæðum selja eða láta þriðja aðila í té persónuupplýsingar notenda.

Tenging við önnur vefsvæði: Bílvirkinn ber ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum sem unnt er að tengjast í gegnum vefsvæði Bílvirkinn og eru með öllu ótengdir Bílvirkinn eða þeim birgjum sem Bílvirkinn er umboðsaðili fyrir. Jafnframt ber Bílvirkinn ekki ábyrgð á þeim vefsvæðum öðrum sem veita aðgang að vefsvæði Bílvirkinn.

Takmörkun ábyrgðar: Bílvirkinn tekur ekki ábyrgð á fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni af neinu tagi sem notandi eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar á vefsvæðinu. Bílvirkinn áskilur sér rétt til að endurskoða þessa skilmála hvenær sem er.

Lögsaga og dómstólar: Notkunarskilmálarnir eru háðir íslenskum lögum, og íslenskir dómstólar hafa einir lögsögu í ágreiningsmálum sem varða notkunarskilmálana og vefsvæðið.